„Við missum af sem samfélag ef við hlustum ekki á börn, þau eru næm fyrir umhverfi sínu og sprúðlandi frjó.“
Barnamenning snýst ekki aðeins um listir og afþreyingu fyrir börn heldur einnig um rétt þeirra til þátttöku, áhrifa og aðkomu að mótun samfélagsins. Fáir þekkja málefnið betur en eigandi og listrænn stjórnandi verðlaunahönnunarstúdíósins ÞYKJÓ, Sigríður Sunna Reynisdóttir, eða Sigga Sunna, sem hefur markað sér sérstöðu á sviði barnamenningar og notar bakgrunn sinn í listum við uppbyggingu og framkvæmd verkefna sem snúa að sköpun með börnum — fyrir börn. Frjáls leikur er henni einstaklega hugleikinn og eitt af því sem hún og hönnunarteymið hennar hafa beint sjónum sínum að. Hún telur mikilvægt að rödd barna heyrist þegar kemur að skipulagi og
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn