Áskriftarskilmálar
*Uppsögn áskriftar skal tilkynna á vefnum birtingur.is undir mínar síður fyrir 15. hvers mánaðar, og tekur hún gildi frá og með næstu mánaðarmótum frá móttöku.
*Stofnun prentáskriftar miðast við afhendingu nýjasta tölublaðs.
*Sendingarkostnaður innanlands er innifalin í verði.
*Valin áskriftarleið er gjaldfærð með einni færslu á greiðslukort við kaup áskriftarleiðar. *Áskrift endurnýjast sjálfkrafa eftir að áskriftartímabili lýkur sama mánaðardag og til hennar var stofnað nema áskrift sé sagt upp fyrir endurnýjunardagsetningu.
*Samkvæmt reglum um rafræn kaup, getur viðskiptavinur hætt við kaup sín innan 14 daga, að því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem hún kom til viðskiptavinar. Greiðslukvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með ef um vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
*Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um sé að ræða ranga/gallaða vöru.
*Öll verð í netverslun eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
*Verð áskriftarleiða geta breyst án fyrirvara, en verð eru ekki afturvirk á virkum áskriftarleiðum.
*Gjafabréf eða kóðar skulu ávallt vera staðfestir með upplýsingum um áskrifandann ásamt kortanúmeri. Segja þarf upp fríáskrift fyrir tímann sem gefinn er upp áður en skuldfært er af greiðslukorti.
Skilmálar fyrir stafræna innheimtu
Með samþykki á skilmálum þessum samþykkir viðskiptavinur að öll frum-og milliinnheimta vegna vanskila,
þ.e. birting innheimtuviðvörunar og milliinnheimtubréfa, fari fram með stafrænum hætti. Á það við hvort sem um er að ræða innheimtu sem framkvæmd er af [nafn kröfuhafa] eða af hálfu innheimtufyrirtækis eða lögmanns sem Birtíngur útgáfufélag felur að annast innheimtuna. Í stafrænni innheimtu felst að alla tilkynningar vegna vanskila berast viðskiptavini með stafrænum hætti t.d. með
tölvupósti á uppgefið netfang hans eða í rafræn skjöl í netbanka. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á skráningu netfangs síns og því að tilkynna
þær breytingar til [nafn kröfuhafa] sem hann kann að gera á netfangi sínu. Hafi viðskiptavinur vanrækt þá skyldu sína að uppfæra upplýsingar um netfang ber hvorki [nafn kröfuhafa] né innheimtuaðili ábyrgð á því að tilkynningar berist ekki viðskiptavini, né því tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna þess að framangreind samskiptaleið var notuð. Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir að netfangi hans kann að vera miðlað til þriðja aðila, þ.e. til innheimtuaðila, í framangreindum tilgangi. Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir að þrátt fyrir að innheimta fari fram með stafrænum hætti er frum-og milliinnheimtukostnaður innheimtur í samræmi við reglugerð nr. 37/2019 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. Viðskiptavini er heimilt að afturkalla samþykki um að innheimta fari fram með stafrænum hætti. Tekur afturköllun gildi um leið og upplýsingarnar eru sannanlega komnar til Birtíngur útgáfufélag.
Trúnaður og öryggi
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Birtíngur ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Lög og varnarþing
Rísi mál vegna samstarfssamnings aðila eða sérsamninga sem tilgreindir eru í skilmálum þessum skal reka það fyrir íslenskum dómstólum.