hönnuður
„Ef þér líður vel, þá lúkkarðu vel!“
Berglind Ósk Hlynsdóttir er sjálfstætt starfandi hönnuður sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá LHÍ árið 2021 og hefur síðan verið að vinna að bæði einka- og samstarfsverkefnum. Í dag er hún með stúdíó í Hlemmur.Haus og hannar undirmerkinu bosk. Annars lifir hún að eigin sögn notalegu lífi í Norðurmýrinni með unnusta sínum, honum Árna, og köttunum þeirra, Bauna og Mugg. Umsjón: Steinunn Jónsdóttir Myndir: Eva Schram Hvenær byrjaðir þú að spá í tísku? „Fimm ára Berglind var alveg með sterkar skoðanir á klæðaburði sínum svo áhuginn byrjaði snemma. Svo hef ég, líkt og flest öll, farið í gegnum alls konar misgóð tískuskeið og alltaf haft miklar skoðanir, þannig að svarið er: ég hef alltaf spáð í þessu”, segir hún og hlær. Hvernig myndir þú lýsa þínum persónulega stíl? „Ég myndi segja að stíllinn minn sé frá degi til dags frekar afslappaður og oft mikill húmor sem fylgir með, hvort sem það er fyndinn bolur eða skrítnar samsetningar á mynstrum/litum eða eitthvað annað. Ég elska líka góða lögun (e....
Tímalaust raðhús sem hefur gengið kynslóða á milli
Umsjón/ Maríanna Björk Ásmundsdóttir Myndir/ Rakel Rún Garðarsdóttir Erla Dóra Gísladóttir, skartgripahönnuður Eddó Design,...